Einfalt og gagnsætt verð

Við fylgjum skýru þriggja skrefa ferli frá greiningu til reksturs. Engin skuldbinding í upphafi og engir óvæntir aukareikningar.

  1. Greining og vinnuferlagreining

    450.000–750.000 kr. + vsk. · Eingreiðsla

    Afmörkuð úttekt á vinnuferlum fyrirtækisins þar sem við finnum hvar gervigreind, sjálfvirkni eða stafrænir starfsmenn geta skilað mælanlegum tímasparnaði og tekjuaukningu.

    • Úttekt á gögnum, kerfum og vinnuferlum
    • Forgangsraðaður tækifæralisti metinn út frá arðsemi (ROI)
    • Nákvæm arkitektúrhönnun og kostnaðarmat fyrir fyrsta stafræna starfsmanninn
    • Skýrt lausnamat sem þú átt. Þú ákveður hvort farið er í smíði.
  2. Smíði og innleiðing

    29.500 kr./klst. + vsk.

    Við smíðum, prófum og tengjum lausnina við ykkar innri kerfi, til dæmis DK, Reglu, Salesforce, HubSpot eða sérkerfi, í dulkóðuðu umhverfi okkar.

    • Sérsniðin virkni, kerfisleiðbeiningar og API-samþættingar við ykkar kerfi
    • Öryggisprófanir, AAD-dulkóðun og ritskoðunarvél virkjuð
    • Þjálfun teymis og afhending vinnuferla
    • Lausnin afhent fullprófuð og tilbúin í rekstur.
  3. Áskrift og öruggur rekstur

    99.000–299.000 kr./mán. á stafrænan starfsmann + vsk.

    Fast mánaðargjald sem tryggir samfelldan rekstur, uppfærslur, öryggisvöktun og aðgang að innviðum okkar.

    • Innifalin keyrsla og allur tæknilegur kostnaður við gervigreindarlíkön, svo sem Claude, Gemini, Kimi og fleiri
    • Engir API-lyklar hjá viðskiptavinum og engir óvæntir reikningar
    • Samfellt öryggis- og persónuverndareftirlit, þar á meðal AAD-dulkóðun
    • Stöðugar fínstillingar, vöktun og tæknilegur stuðningur.

Öll verð eru án vsk. Þú byrjar á skrefi 1 og ákveður sjálf/ur framhaldið.