Stafrænn starfsmaður frá OT AI

socialPost skrifar færslurnar ykkar á Facebook og Instagram

Þið sendið tölvupóst eins og þið gerið í dag. socialPost les hann, býr til færslu í ykkar eigin útliti og sendir hana til samþykktar. Þegar einhver hjá ykkur samþykkir birtist hún á ykkar eigin reikningum.

Svona virkar það

  1. 1. Tölvupóstur sendur

    Starfsmaður sendir texta auglýsingarinnar og myndir á netfang sem hann fær hjá okkur.

  2. 2. Færslan verður til

    socialPost les efnið, býr til texta og eignakort í ykkar litum og letri, og setur nafn, mynd og símanúmer starfsmannsins á kortið.

  3. 3. Samþykki

    Drögin koma í tölvupósti. Þar má samþykkja, hafna eða opna stjórnborðið og skoða betur.

  4. 4. Birting

    Samþykkt færsla birtist á Facebook-síðunni ykkar og Instagram-reikningnum ykkar.

Það sem skiptir máli

Þið eigið reikningana. socialPost birtir á ykkar eigin Facebook-síðu og Instagram-reikning. Við eigum þá ekki og við flytjum þá ekki.

Ekkert birtist án samþykkis. Það er ekki stilling. Það er innbyggt.

Textinn er ykkar. Lýsingin sem starfsmaðurinn skrifar fer óbreytt í færsluna. socialPost semur ekki nýjar staðhæfingar um eignina.

Útlitið er ykkar. Litir, letur og merki koma úr ykkar eigin hönnunarstaðli.

Um OT AI

OT AI er vörumerki OÞ ehf. Við smíðum stafræna starfsmenn fyrir íslensk fyrirtæki. socialPost er sá fyrsti sem fer í almenna notkun.

otai@otai.is · +354 839 1113

PersónuverndarstefnaÞjónustuskilmálarEyðing gagna

Efni sem gervigreind semur er merkt: Generated by OT AI · Review before use

socialPost · OT AI